Hjálpaðu að bjóða stelpum frá efnaminni fjölskyldum í Reykjavík og á Akureyri að koma í rokkbúðir á vegum Stelpur rokka! í sumar án þess að borga þátttökugjald. Þau stefna að því að geta boðið upp á allt að tíu pláss sem verða niðurgreidd að miklu eða öllu leyti.
Stelpur rokka! er sjálfboðaverkefni sem starfar ekki í hagnaðarskyni og reiðir sig á styrki og einstaklingsframlög til þess að geta boðið stelpum í rokkbúðirnar. Í rokkbúðunum læra stelpurnar á hljóðfæri, spila í hljómsveit, taka þátt í skemmtilegum vinnusmiðjum um konur og tónlist og spila frumsamið lag á lokatónleikum.
Stelpur Rokka! er tónlistarverkefni sem miðar að því að efla og styrkja ungar stelpur til þess að láta hæfileika sína og rödd heyrast í íslenskri tónlistarsenu. Stelpur rokka! héldu mánaðarlangar rokkbúðir fyrir 35 stelpur á aldrinum 12 til 16 ára í júlí síðastliðnum og gengu rokkbúðirnar vonum framar. Stúlkurnar mynduðu 7 hljómsveitir og komu fram á lokatónleikum fyrir framan fullan sal fjölskyldu og vina.
Í sumar verða rokkbúðir haldnar bæði á Akureyri og í Reykjavík. Við stefnum á að bjóða 60 stelpum að rokka með okkur í sumar. Boðið verður upp á mánaðarlangt námskeið fyrir 40 stelpur, frá 18. júní – 12. júlí í Reykjavík, og vikulangt námskeið á Akureyri 10. – 14 júní fyrir 20 stelpur.
Hver stelpa velur sér hljóðfæri við upphaf námskeiðs og mynda stelpurnar hljómsveitir út frá því vali. Stúlkurnar fá bæði leiðsögn á valið hljóðfæri og leiðsögn í að spila saman í hljómsveit. Með hverjum hljómsveitarhópi vinna tveir kvenkyns sjálfboðaliðar sem veita leiðsögn í hljóðfæraleik, leiðbeina við lagasmíðar og aðstoða hljómsveitirnar við að æfa saman. Leiðbeinendur munu einnig skipuleggja kynningar og umræður um femíníska nálgun á ýmis tónlistartengd málefni á meðan á búðunum stendur. Á æfingatímabilinu munu íslenskar tónlistarkonur heimsækja búðirnar og veita stúlkunum hvatningu og gefa uppbyggileg ráð varðandi tónlistarsköpun og flutning. Í lok búðana verða svo haldnir tónleikar þar sem hljómsveitirnar flytja frumsamin lög.
Stelpur rokka! munu halda áfram að reiða sig á styrki og einstaklingsframlög til þess að halda rokkbúðirnar. Á þann hátt getum við haldið námskeiðskostnaði í lágmarki, en jafnframt leggjum við metnað í að vera eitt af fáum verkefnum á Íslandi sem vísar engum þátttakanda frá vegna fjárskorts. Sú stefna gaf mjög góða raun í fyrra og gátum við boðið nokkrum stúlkum pláss sem annars hefðu ekki átt kost á að sækja námskeiðið. Stefnan er í samræmi við markmið okkar að mismuna engri stúlku sökum fjárhags, kynhneigðar, trú, uppruna eða tungumáls. Átaksverkefni þessa árs er að kynna rokkbúðirnar vel fyrir stelpum af erlendum uppruna.
Markmið okkar er að bjóða enn fleiri stelpum upp á niðurgreiðslu að miklu eða öllu leyti í sumar. Til að ná því markmiði leitum við til einstaklinga sem trúa á rokkbúðastarfið og vilja leggja sitt lóð á vogarskálarnar við að hjálpa stelpum að rokka. Í sumar viljum við geta boðið allt að tíu stelpum niðurgreidd eða ókeypis pláss í búðirnar.
Sjá nánar hér þetta flotta verkefni.