Þú þarft ekki einu sinni að hita ofninn- bara að njóta kökunnar !
Langar þig alveg rosalega í sneið af köku en hefur engan tíma til að baka? Það er ekki flókið að leysa málið!
Búðu til skelina –
Settu pakka af graham kexi eða LU kexi í plastpoka, malaðu kexið með því að rúlla kökukefli yfir pokann. Bættu ½ bolla af sykri og ½ bolla af bræddu smjöri saman við mylsnuna, blandaðu þessu vel saman og settu það svo á botninn á formi.
Kakan
Blandaðu saman í stórri skál 250 gr af sýrðum rjóma, 1 pela af rjóma (sem þarf að þeyta) og ½ bolla af sykri. Þetta er hrært saman og svo er hrærunni hellt í formið, ofan á skelina úr grahms/LU kexinu. Láttu standa í ísskáp u.þ.b. tvo tíma.
jarðarberin (eða aðrir ávextir) ofan á kökuna
Þú setur bara það ofan á kökuna sem þig langar mest í – ný jarðarber, ferskjur,nýjan ananas eða hvað annað sem þér dettur í hug!
Njóttu vel.