Michael Douglas fékk krabbamein vegna munnmaka

Michael Douglas fékk krabbamein í hálsinn og segir hann að hann hafi fengið krabbameinið vegna kynsjúkdóms sem hann fékk eftir að hafa veitt munnmök.

Michael sagði frá þessu í viðtali við Guardian UK  og segir að hann hafi fengið kynsjúkdóm sem nefnist HPV eða „human papillomavirus“.

„Þetta er kynsjúkdómur sem veldur krabbameini“ segir Michael en hann greindist með krabbamein í hálsi árið 2010 og þurfti að gangast undir geisla- og lyfjameðferð.

Michael hefur verið laus við krabbameinið í 2 ár núna.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here