Þessar eru rosalega ljúffengar.
Efni
- 4 miðlungi stórar, sætar kartöflur
- 8 beikonsneiðar
- 1/4 bolli rjómi
- 1/2 bolli mulinn Parmesan ostur
- 1 matsk. smjör, skorið í bita
- 1 matsk. fita af beikoninu
- 1 tesk. salvía (þurrkuð)
- 1/2 tesk. gróft salt
- 1/2 tesk. svartur pipar
Aðferð
- Hitið ofninn í 180˚ C.
- Látið kartöflurnar á plötu og bakið í 1klst. (eða þangað til þær eru mjúkar) Látið þær kólna þar til þægilegt er að eiga við þær.
- Steikið beikonið þar til það er orðið stökkt. Haldið eftir 1 matskeið af fitunni en látið beikonið á eldhúsþurrkur. Látið beikonið í bitum í matvinnsluvél, malið og setjið svo í skál ásamt ostinum. Blandið vel saman.
- Skerið kartöflurar í tvennt, takið innan úr þeim (sjá mynd) og setjið í skál ásamt beikon fitunni, rjómanum, ostinum, smjöri, salvíu, salti og pipar og hrærið saman þar til hræran er létt og mjúk.
- Skiptið hrærunni jafnt í kartöflubátana 8 og dreifið svo beikon og parmesan ostablöndunni yfir. Bakið í ofni í 15 mín. eða þar til skorpan er brún og stökk.
- Berið strax fram og njótið vel!