Fullt nafn: Sigríður Lund Hermannsdóttir
Aldur: er alveg að verða 43
Hjúskaparstaða: Í sambandi
Atvinna: Fjölmiðlakona ….Ritstjóri siggalund.is og útvarpskona á K100,5
…
Hver var fyrsta atvinna þín? Fyrir utan það að passa börn var það unglingavinnan í Vestmannaeyjum
Mannstu eftir einhverju ákveðnu tískuslysi frá unglingsárunum? OMG Já, þau voru alltof mörg. Ég man sérstaklega eftir grænum joggingbuxum og peysu með hlébarðamunstri sem ég var mikið í, ekki smart.
Áttu leyndarmál sem mun fylgja þér til grafar? Já…ég verð að viðurkenna það
Hefurðu farið hundóánægð/ur úr klippingu og sagt ekki neitt við klipparann? Já, allt of oft, en það er langt síðan síðast. Einu sinni þorði ég aldrei að segja það sem mér finnst/fannst. En ég geri það hiklaust í dag, er ekkert feimin við það.
Kíkirðu í baðskápana hjá fólki sem þú ert í heimsókn hjá? Legg það ekki í vana minn, en það hefur alveg komið fyrir
Vandræðalegasta atvik sem þú hefur lent í? Úff líf mitt hefur verið fullt af vandræðalegum atvikum. Látum þar við sitja
Vefsíðan sem þú skoðar oftast? Siggalund.is …það segir sig sjálft vegna vinnunnar
Seinasta sms sem þú fékkst? „Erum að skipta um gipsi. Hringi eftir stutta.“ Sms frá Svala yfirmanni mínum í útvarpinu….
Hundur eða köttur? Hundur ekki spurning. Ég á tvo Ösku Lund og Lady
Ertu ástfangin? Já, það er ég svo sannarlega og ég meina það. Ég er heppin í ástum.
Hefurðu brotið lög? Já, pínu. Ég hef verið tekin fyrir of hraðan aktstur en að öðru leyti mundi ég teljast frekar löghlýðin
Hefurðu grátið í brúðkaupi? Oft og ég geri það yfirleitt alltaf. Finnst brúðkaup svo falleg.
Hefurðu stolið einhverju? Því miður, já. Ég stal einu sinni leikfangabók úr búð í eyjum þegar ég var litil stelpa, við vorum nokkrir krakkar bara að prófa. Það gerði ég svo aldrei aftur
Ef þú gætir breytt einu úr fortíðinni hvað væri það? Það er bara eitt og aðeins eitt sem ég mundi vilja breyta. Ég hefði viljað taka skynsamari ákvarðanir fjármálum þegar ég var ung. Vanþekkingin á því sviði dró langan dilk á eftir sér sem ég hefði alveg viljað vera laus við.
Hvernig sérðu þig fyrir þér þegar þú ert komin á eftirlaun? Ég sé mig njóta lífsins til hins ítrasta. Lífið er gott, ég er orðin amma. Ég er í hörkuformi þrátt fyrir að vera orðið löggilt gamalmenni og ég er ennþá yfir mig ástfangin af manninum mínum sem ég er auðvitað búin að giftast. Við búum í litlum sveitabæ rétt fyrir utan borgina og við ferðumst alveg þrælmikið…. ég er harð ákveðin í að þetta verði svona!
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.