Hér kemur svo þriðja og seinasta greinin frá mér með þessi blessuðu húsráð. Ég vona að einhverjir hafi jafn gaman að svona og ég.
1. Ef nýju skórnir eru að þrengja að þér einhversstaðar, farðu þá í þykka sokka og svo í skóna. Taktu svo hárblásarann og láttu hann blása heitu lofti á þann stað sem er of þröngur. Það mun gera kraftaverk!
2. Ef þú sullar á þig rauðvíni þá er eitt það besta til að ná því úr, hvítvín. Ef þú hellir hvítvíni á blettinn mun hann mjög líklega nást úr.
3. Settu glært naglalakk innan á hringana þína ef þeir eru að skilja eftir sig gráa/græna rönd á fingrunum þínum
4. Merktu lyklana þína með mismunandi lit af naglalakki
5. Krókar fyrir sturtuhengi eru snilld til að halda uppi töskum inni í skáp
Skyldar greinar:
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.