
Du pareil au même eða franska verslunin eins og ég þekkti hana var starfrækt á Íslandi um áraraðir og seldi vönduð barnaföt frá París. Ég er ekki frá því að ég sakni hennar. Á ferð minni um borgina rómantísku var ég ekki lengi að þræða búðina hátt og lágt og koma út með fullar hendur af pokum og stórt bros út á kinnar.
Það er þó ekki nauðsynlegt að ferðast til að nálgast allar fallegu haustvörurnar þeirra því Du pareil au même heldur úti flottri vefverslun með vörum á viðráðanlegum verðum og þeir senda til Íslands. Haustlitirnir gráir, svartir, brúnir, vínrauðir og gulir eru allsráðandi í nýju línunni og eru stærðirnar frá 0-14 ára.
Kíkið á úrvalið hér www.dpam.com