Ostakaka med ananas og kokoshnetu
Fyrir 6-8 manns
Efni:
SKELIN
- 1-1/2 bolli graham kex
- 1/2 bolli bráðið smjör
- 6-8 glös
FYLLINGIN
- 225 gr. rjómaostur (til matreidslu)
- 1 bolli þeyttur rjómi
- 1/4 -1/2 bolli agave syrop
- 1 tsk. vanilludropar
- 1/2 bolli hakkaður ananas
- 1/2 bolli kókosflögur (og svolítið meira til skrauts)
- Þeyttur rjomi til skrauts (ef vill)
Aðferð:
- Blandið muldu Graham kexinu og smjöri saman í lítilli skál og skiptið því jafnt í glösin, (sja mynd) .
- Látið ost, rjóma, syrop, vanilludropa, ananas og kókosflögur í skál, hrærið með handþeytara þar til blandan er létt og komin vel saman. /skiptið blöndunni upp í glösin og kælið.
- Áður en eftirrétturinn er borinn fram má bæta svolitlum þeyttum rjóma og kókosflögum ofan a hvert glas.
Njótið vel!