Þessi kaka er alveg dásamleg. Tilvalin í kaffitímanum ef þú vilt gera vel við þig og þína.
Efni:
- 2 bollar hveiti
- 1 msk. kanill
- 1 tsk. negull
- 2 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. matarsóti
- 1 tsk. salt
- 4 egg
- 1 bolli matarolía
- 1 bolli sykur
- 1 bolli púðursykur (þjappaður)
- 1 msk. vanilludropar
- 4 bollar raspaðar gulrætur
- 1 1/2 bolli saxaðar valhnetur
- 1 bolli rúsínur
Kremið:
- 1 bolli smjör
- 500 gr. rjómaostur
- 5 bollar flórsykur
- 1/2 msk. vanilludropar
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180˚ C. Takið til tvö kringlótt form.
- Setjið egg, olíu, sykur og vanilludropa í hrærivélarskál, hrærið.
- Bætið þurrefnunum út í og hrærið vel.
- Bætið gulrótum, hnetum og rúsínum út í.
- Skiptið deiginu í formin og bakið í u.þ.b. 45 mín. eða þar til miðjan er orðin stinn.
- Lagið kremið með því að hræra saman smjörið og rjómaostinn. Bætið flórsykrinum smám saman út í og svo vanilludropunum.
- Látið kökurnar kólna og hvolfið þeim svo úr formunum.
- Smyrjið 1/3 af kreminu á annan botninn, látið álíka mikið á hinn botninn og setjið þá svo saman.
- Smyrjið afganginum af kreminu ofan á kökuna og á hliðarnar.
10. Geymið kökuna í ísskápnum svo að hún haldist fersk.