Hann heitir Akihisa Hirata sá sem hannaði þetta óvenjulega heimili í Japan. Allt heimilið er hannað í kringum stigann sem er í miðjunni og en við stigann styðja þrjár stoðir.
Margir kynnu að halda að þetta heimili væri alls ekki öruggt fyrir börn en á þessu heimili búa 2 lítil börn og finnst þeim og vinum þeirra heimilið vera eins og ævintýrahöll.
Takið eftir öllum flottu hillunum og hirslunum.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.