Vefurinn Stærðfræði í mynd er frábær vefur fyrir alla sem hafa áhuga á stærðfræði, kennurum, nemendum grunnskóla, framhaldsskóla og foreldrum sem þurfa að auka skilning sinn við aðstoð barna sinna.
Kveikjan að námsvefnum, segja aðstandendur síðunnar, að hafi verið sú vöntun á markaðnum fyrir nýja nálgun í stærðfræðikennslu þar sem áherslan er lögð á framsetningu dæma á einfaldan og skýran hátt og með myndum. Leitast er við að halda texta í lágmarki og leyfa framsetningu dæma og mynda að tala sínu máli. „Ein mynd er á við þúsund orð“ – er haft eftir Napóleon og er það leiðarljós námsvefsins. Einnig er lögð áhersla á að allir sem áhuga hafi geti notað vefinn.
Efnistök vefsins eru stærðfræði fyrir 8. 9. og 10. bekk grunnskóla, 1. árs nema framhaldsskóla og samræmd könnunarpróf í stærðfræði fyrir 10. bekk og úrlausnir þeirra.
Vefslóð Stærðfræði í mynd og þau eru líka á Facebook
Stofnendur og höfundar síðunnar eru: Árni Möller, Guðmunda Dagmar Sigurðardóttir og Olga Hanna Möller
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.