Við birtum grein á dögunum þar sem móðir er að vara aðra foreldra við barnaperra á Facebook.
Við höfum nú aflað okkur upplýsinga og fundið fleiri síður sem væntanlega eru á vegum sama aðila, án þess að við höfum fengið það staðfest. Virðist sem hann hafi einstakt dálæti á nafninu „Ósk“.
Þessi „profile“ mynd er af þessari amerísku síðu.
Veggfóðursmyndin er af þessari síðu, myndin er sú 6. ef þú telur niður frá toppi. Þessa síðu á saklaus barnaljósmyndari í Utah í Bandaríkjunum.
„Profile“ myndin er tekin af bloggsíðu 13 ára gamallar stúlku í Bandaríkjunum.
Foreldrar barna á Facebook! Við mælum eindregið með því að þið farið yfir vinalista barna ykkar reglulega og sjáið hverjir eru vinir þeirra.