Ofurmódelið Ásdís Rán hóf starfsferil sinn á Sprengisandi á matsölustað en hefur í dag starfað í mörg ár sem fyrirsæta og hefur meðal annars setið fyrir í Playboy.
Ásdís Rán ætlar að deila með okkur nokkrum leyndarmálum í Yfirheyrslunni í dag.
Fullt nafn: Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Aldur: 34
Hjúskaparstaða: Single
Atvinna: eldhugi, frumkvöðull og Ísdrottning
Hver var fyrsta atvinna Þín? Minnir að það hafi verið á Sprengisandi matsölustaðnum hjá Ragnari Tómassyni þegar ég var unglingur.
Manstu eftir einhverju ákveðnu tískuslysi frá unglingsárunum? Bleikur vind-íþróttagalli sem þá var mikið í tísku og hélt að hann væri svaka cool. Væri samt til í að eiga hann núna…
Áttu leyndarmál sem mun fylgja þér til grafar? Já ég á nokkur, en ætla ekki að gefa þau upp núna 😉
Hefurðu farið hundóánægð úr klippingu og sagt ekki neitt við klipparann? Já það hefur gerst nokkrum sinnum en mundi ekki láta það gerast í dag.
Kíkirðu í baðskápana hjá fólki sem þú ert í heimsókn hjá? Nei hef ekki gert það hingað til..
Vandræðalegasta atvik sem þú hefur lent í Þegar ég hitti Bruce Willis í LA og fékk algjört „brainfreeze“ og það vall upp úr mér einhver vitleysa og ég vissi varla hvað ég hét. Ég var rosa skotin í honum á þessum tíma og svo birtist hann allt í einu beint fyrir framan mig og var eitthvað að daðra við mig þegar ég gerð mér grein fyrir því hver þetta var fraus ég. Ég mundi vilja taka þetta „mómennt“ aftur!
Í hvernig klæðnaði líður þér best? Í flottum íþróttagalla
Hefurðu komplexa? Já
Hver er besta setning eða orðtak sem þú hefur heyrt? ? „The greatest pleasure in life is doing what people say you cannot do.“
Vefsíðan sem þú skoðar oftast? Facebook
Hundur eða köttur? Köttur
Ertu ástfangin? Já af lífinu
Hefurðu brotið lög? Já borgaði nokkrum sinnum löggunni í Sofiu til að sleppa við umferðasektir.
Hefurðu grátið í brúðkaupi? ? Já græt oftast í Brúðkaupum
Hefurðu stolið einhverju? ? Já prufaði það þegar ég var yngri en ætla ekki að ræða það frekar.
Ef þú gætir breytt einu úr fortíðinni hvað væri það? Ekkert eitthvað sérstakt en margir hlutir sem ég hefði viljað gera öðruvísi – en maður lærir víst ekki nema af mistökum.
Hvernig sérðu þig fyrir þér þegar þú ert komin á eftirlaun? „Chillandi“ í einhverju heitu, framandi landi með hvítvín í annarri 😉
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.