Jennifer Aniston er búin að klipppa löngu lokkana sína en hún frumsýndi nýju klippinguna sína á mánudaginn. Það má eiginlega segja að hún sé komin með „bob“ klippingu en hún var að stússast í Los Angeles þegar þessar myndir voru teknar.
Jennifer sagði í samtali við Vogue.com, að þetta hafi verið skyndiákvörðun en hún hafi verið að horfa á sjónvarpið og séð flotta klippingu og hún tók mynd af sjónvarpinu og sendi klipparanum sínum. Svo fór hún í klippingu!
Jennifer hefur alltaf verið fyrirmynd margra kvenna þegar kemur að klippingum og nú munu örugglega margar konur skella sér í klippingu til að fá alveg eins klippingu og stjarnan síunga.