Við vitum öll að það er ekki alltaf auðvelt að fá tíma hjá heimilislækni og þess þá síður hjá sérfræðingum. Lyfja í Lágmúla og Smáratorgi bjóða upp á hjúkrunarþjónustu, en þar geturðu fengið hinar ýmsu þjónustu ásamt því að á staðnum eru hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar sem veita ráðgjöf og aðstoð við val á hjúkrunarvörum. Í Lyfju Lágmúla og Smáratorgi eru hjúkrunafræðingur og sjúkraliðar, sem veita ráðgjöf og aðstoð við val á hjúkrunarvörum.
Til að koma á móts við álag á starfsfólk sjúkrastofnana og spara biðtíma býður Lyfja upp á að taka sauma og léttar sáraskiptingar. Í Lágmúla er einnig boðið upp á sprautun milli kl. 10-12 virka daga.
Í Lyfju Lágmúla og Smáratorgi er boðið upp á:
- Beinþéttnimæling
- Öndunarmæling
- Blóðþrýstingsmæling
- Blóðsykursmæling
- Blóðfitumæling*
- Blóðrauðamæling (hemoglobin)
- Súrefnismettun í blóði** Þarf að vera fastandi fyrir þessar mælingar
Hjúkrunarþjónusta Lyfju er starfrækt á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu eins og hér segir:
Lyfja Lágmúla: Frá kl 8.00 – 18.00 (8.00 – 17.00 júní-ágúst)
og á laugardögum frá kl. 11.00-15.00 1.september – 31.mai Sími 533 2300 eða 533 2308
Lyfja Smáratorgi: Frá kl 8.00 til 12.00 mán.-fimmt. Lokað á föstudögum Sími 564 5600
Nánari upplýsingar er að finna á www.lyfja.is
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.