Rúnar Freyr Gíslason hefur haft í mörgu að snúast á árinu 2013 en hann fór meðal annars með fjölskyldunni sinni til Spánar: „Það var æðislegt frí. Ég fór líka með konu minni hringinn í kringum landið síðasta sumar en það var besta frí sem ég hef nokkurn tímann farið í,“ segir Rúnar Freyr en hann fór líka til London með félögum sínum til þess að horfa á leik í ensku úrvalsdeildinni. „Árið 2013 var alveg frábært ár hjá mér.“
Það verða rólegheit og fjölskyldustemning hjá Rúnari á gamlárskvöld: „Ég og konan mín verðum með öll börnin okkar heima og það verður bara hefðbundið: Matur, sjónvarp og sprengjur!“
Aðspurður um það hvort hann ætli sér að strengja áramótaheit þetta árið segir Rúnar: „Ég er með nokkur verkefni í gangi inni í mér og mun halda áfram með þau Ég vil óska öllum gleðilegs árs!“
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.