Þegar ég heyri orðið mánudagsmatur þá dettur mér bara í hug fiskur.
Þegar öll dagsverk eru búin finnst mér gott að koma heim til mín, loka kuldabola úti, kveikja á kertaljósum og elda einhvern góðan fiskrétt. Fiskur er í miklu uppáhaldi hjá mér og skiptir ekki máli hvaða vikudagur er. Það er líka algjör bónus að geta tekið til í grænmetishólfinu í leiðinni. Það var akkúrat það sem ég gerði í gærkvöldi og úr varð þessi fíni réttur. Fékk hann A+ hjá öllum við borðið.
Fiskurinn
400 ml kókosmjólk
1 meðalstór brokkólíhaus
2 stórar gulrætur
1 rauð paprika
2-3 tsk red curry paste (meira ef þið viljið extra spicy)
1 msk fiskisósa
2 tsk hunang
500 g ýsa
Meðlæti
Bankabygg
Laukur
Sveppir
Aðferð
1. Hellið 3 hlutum af vatni í pott og hitið að suðu. Látið 1 hluta af bankabyggi út í og saltið létt – lækkið hitann aðeins og sjóðið í rúmar 40 mínútur.
2. Takið fram pönnu og hellið kókosmjólk á hana ásamt brokkolíi, gulrótum og papriku. Sjóðið þetta saman í 8-10 mín.
3. Bætið curry paste við og látið malla áfram í 5 mínútur.
4. Bætið fiskisósu og hunangi við. Blandið saman og leyfið þessu að sitja í stutta stund.
5. Sigtið þá grænmetið upp úr og skiljið eingöngu sósuna eftir á pönnunni. Takið fram eldfast mót og leggið grænmetið í botninn.
6. Skerið ýsuna í passlega stóra bita og skellið þeim á pönnuna. Fiskurinn er tilbúinn þegar hann fer aðeins að leysast í sundur og hættir að vera glær í miðjunni.
7. Á annarri pönnu er svo rosa gott að steikja lauk og sveppi saman til að bera fram með ýsunni.
8. Takið fram fatið með grænmetinu. Leggið fiskinn ofan á og hellið sósunni þar yfir.
Berið fram ásamt bankabygginu, lauk-sveppagumsinu og salati. Ekki að það sé eitthvað heilagt samt! Það er um að gera að nota það grænmeti sem þið eigið til í þennan rétt. Svo er bara skilyrði að njóta vel.
Höfundur: Birna Varðar.
Birna er tvítug Reykjavíkurmær. Hún er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og hefur mikinn áhuga á mataræði og heilbrigðum lífsstíl. Birna stundar Boot Camp, hlaup og lyftingar af kappi. Hún er dugleg að takast á við krefjandi áskoranir og leika lausum hala utan þægindarammans. Hvort sem það er utanvegahlaup, kraftlyftingar, þrekkeppnir eða annað í þeim dúr. Birna mun deila uppskriftum úr eigin tilraunaeldhúsi með lesendum hún.is ásamt því að skrifa skemmtilega og upplífgandi pistla er snúa að heilbrigðum lífsstíl og sjálfsrækt.
Birna er tvítug Reykjavíkurmær. Hún er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og hefur mikinn áhuga á mataræði og heilbrigðum lífsstíl. Birna stundar Boot Camp, hlaup og lyftingar af kappi. Hún er dugleg að takast á við krefjandi áskoranir og leika lausum hala utan þægindarammans. Hvort sem það er utanvegahlaup, kraftlyftingar, þrekkeppnir eða annað í þeim dúr. Birna mun deila uppskriftum úr eigin tilraunaeldhúsi með lesendum Hún.is ásamt því að skrifa skemmtilega og upplífgandi pistla er snúa að heilbrigðum lífsstíl og sjálfsrækt.