Ég hef gert ýmsar tilraunir með hafrakökur. Þetta er sú nýjasta og kom hún mjög vel út.
1 ¾ dl gróft haframjöl
2 ½ dl fínt haframjöl
2 dl fínt spelt
1 dl hveitikím
¼ tsk herbamare salt
2 tsk vínsteinslyftiduft
2 ½ dl kókosolía (brædd)
2 dl kókospálmasykur (einnig hægt að nota hrásykur)
1 egg
2 tsk vanilludropar
80-100 gr. kókosflögur
lúka af valhnetum
nokkrar döðlur
2 msk mjólk
Aðferð
1. Blandið saman höfrum, spelti, hveitikími, salti og lyftidufti í skál
2. Setjið brædda kókosolíuna og sykurinn í matvinnsluvél eða mixara og blandið í allt að 2 mínútur
3. Bætið eggi, vanilludropum og mjólk í blandarann og mixið áfram í aðrar 2 mínútur
4. Blandið blautu og þurru saman í matvinnslu- eða hrærivél
5. Bætið kókosflögum, valhnetum og döðlum við í lokin og hrærið vel
6. Bakið við 175 gráður í 8-12 mínútur
Uppskriftin gerir um 20 kökur
Höfundur: Birna Varðar
Birna er tvítug Reykjavíkurmær. Hún er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og hefur mikinn áhuga á mataræði og heilbrigðum lífsstíl. Birna stundar Boot Camp, hlaup og lyftingar af kappi. Hún er dugleg að takast á við krefjandi áskoranir og leika lausum hala utan þægindarammans. Hvort sem það er utanvegahlaup, kraftlyftingar, þrekkeppnir eða annað í þeim dúr. Birna mun deila uppskriftum úr eigin tilraunaeldhúsi með lesendum Hún.is ásamt því að skrifa skemmtilega og upplífgandi pistla er snúa að heilbrigðum lífsstíl og sjálfsrækt.