Það er gaman að borða mexíkóskan mat. Flest kunnum við vel að meta mjúkan burrito eða matarmikla quesadillu. Ég þarf þó alltaf að vera að prófa eitthvað nýtt og leika mér með mismunandi útfærslur. Þessar tortillaskálar sem mætti einnig kalla tacoskálar gleðja augað, kveikja á garnagaulinu og dáleiða bragðlaukana. Þú bara verður að prófa!
Heilhveiti tortillur
Hýðishrísgrjón (soðin)
Ostur að eigin vali
Hakk
400 gr. hakk
300 gr. medium chunky salsa frá Santa Maria
1 dl vatn
1 lítil dós ora maísbaunir
½ paprika
4 sveppir
½ kúrbítur
1 venjulegur laukur
Salt og pipar
Guacamole
1 avocado
1 tómatur
1-2 hvítlauksrif
1 tsk sítrónusafi
100 gr. kotasæla
Salt og pipar
Aðferð
1. Takið heilhveiti tortillur og setjið í litlar skálar eða mót sem þola að fara í ofn. Bakið í 20 mínútur við 180 gráður.
2. Setjið hakk á vel heita pönnu og steikið þar til það nær brúna litnum.
3. Bætið salsa og vatni við og blandið vel saman.
4. Skerið niður grænmetið og bætið við ásamt maísbaunum. Saltið og piprið eftir smekk. Látið malla áfram.
5. Takið tortillaskálarnar út úr ofninum. Nú eiga þær að vera orðnar vel stökkar og hægt að taka þær úr skálinni/mótinu.
6. Setjið soðin hýðishrísgrjón í botninn á skálunum.
7. Setjið hakkblönduna ofan á hrísgrjónin og ost þar ofan á.
8. Setjið skálarnar aftur inn í ofn og bakið í 10 mínútur í viðbót.
9. Setjið allt sem á að fara í guacamole-ið í matvinnsluvél eða blandara og mixið vel saman.
10. Takið skálarnar út og toppið með guacamole.
Þetta bar ég svo fram með salati og blákornasnakki (blue corn chips) – það bara gerist ekki betra!
Birna er tvítug Reykjavíkurmær. Hún er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og hefur mikinn áhuga á mataræði og heilbrigðum lífsstíl. Birna stundar Boot Camp, hlaup og lyftingar af kappi. Hún er dugleg að takast á við krefjandi áskoranir og leika lausum hala utan þægindarammans. Hvort sem það er utanvegahlaup, kraftlyftingar, þrekkeppnir eða annað í þeim dúr. Birna mun deila uppskriftum úr eigin tilraunaeldhúsi með lesendum Hún.is ásamt því að skrifa skemmtilega og upplífgandi pistla er snúa að heilbrigðum lífsstíl og sjálfsrækt.