Nú ætlum við að bjóða lesendum okkar á Hún.is að senda inn persónulegar fyrirspurnir um allt sem viðkemur förðun og einnig verður hægt að senda mér mynd af sér til að fá aðstoð með val á litum eða ráðleggingar t.d með húðina, hvernig á að hylja bauga eða roða, hvaða eyeliner þú átt að nota o.sv.frv.
Margar konur þurfa aðstoð og ráðgjöf með val á litum og hvernig þær eiga að farða sig. Ég hef í fjöldamörg ár kennt konum á öllum aldri að farða sig og kennt þeim grunnatriðin í förðun bæði dag og kvöldförðun. Að fá aðstoð frá fagmanni hjálpar mikið svo ég tali nú ekki um sparnaðinn í snyrtivörukaupum þar sem við erum allt of oft að kaupa fullt af vörum sem við bæði kunnum ekki að nota og þurfum alls ekki.
Ef þú vilt frá ráð með liti og förðun sendu mér þá mynd af þér á netfangið kristin@noname.is og ég aðstoða þig með allt sem þig vantar að vita. Eins ætla ég og Hún.is að bjóða þér að birta fyrir og eftir myndir hér á síðunni hjá okkur, ekkert ósvipað eins við gerðum með förðunarleikinn fyrir jól í samvinnu með Förðun skref fyrir skref.
Hér er mynd fyrir förðun.
Hér er mynd eftir förðun.
Hægt er að panta sérkennslu í förðun en þar kenni ég umhirðu húðar og hanna dag og kvöldförðun sem hentar þínum lífstíl. Einnig er hægt að koma með vinkonum og fá kennslu í 5 mínútna förðun sem allar konur þurfa að læra. Studio NN í Hlíðasmára 8 býður upp á faglega aðstoð þar sem allar konur fá förðun og kennslu á þeim vörum sem þær versla sér.