Í tilefni af Mottumars, átaki Krabbameinsfélagsins, hefur Netgíró, í samstarfi við Bland.is, ákveðið að standa að uppboði á fjölmörgum munum þjóðþekktra Íslendinga sem og viðburðum tengdum þeim.
Meðal gripa sem boðnir verða upp má nefna Chelsea stuttbuxur sem Eiður Smári Guðjohnsen lék í, en það er vinur hans Auðunn Blöndal sem gefur þær, gítarinn úr kvikmyndinni Málmhaus sem var í eigu aðalpersónu myndarinnar en það er Ragnar Bragason leikstjóri sem gefur hann og hlaupabuxur skemmtikraftsins Péturs Jóhanns Sigfússonar úr Reykjavíkurmaraþoninu á síðasta ári og má taka fram að þær hafa ekki verið þvegnar eftir hlaupið.
Þá gefur hljómsveitin Dimma sérsmíðaðan míkrafónstand, útvarpsmaðurinn Ívar Guðmundsson gefur keppnisskó Arnars Grant og leikarinn Jóhannes Haukur gefur átakinu út að borða, leikhús fyrir 2 og tækifæri til að hitta leikara eftir sýningu. Þá má geta þess að leikstjórinn Bragi Þór Hinriksson gefur síðustu eintökin af hinni löngu uppseldu mynd Algjör Sveppi og töfraskápurinn. Eintökin eru árituð af Sveppa.
Kristín Stefáns gefur líka til uppboðsins bókina sína Förðun, skref fyrir skref og glæsilegar förðunarvörur.
Það er því ljóst að hægt er að fá stórskemmtilega hluti til eignar með þátttöku í uppboði Netgíró til styrktar Mottumars frá og með miðvikudeginum 12. mars. Ykkar framlag getur skipt sköpum.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.