Þetta myndband er alveg yndislegt, en höfundar þess fóru af stað með myndavél og þrífót og báðu fólk að horfa í myndavélina í 10 sekúndur.
Hugmyndin að baki myndbandinu var að gefa lifandi mynd af persónum án þess að nota orð.
Aðstandendur verkefnisins, sem heitir Humans of Reykjavík, eru Erlendur Sveinsson og Bragi Brynjarsson og tónlistin er að sjálfsögðu eftir Ásgeir Trausta.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.