Margrét Saga verður tvítug í sumar og býr á Akranesi ásamt kærastanum sínum og syni sínum sem er fimm mánaða.
„Ég hef ótrúlega gaman að því að syngja og hef gert það síðan ég man eftir mér, ég hef aðeins verið að taka upp,“ segir Margrét Saga en hér syngur hún lagið Dream sem upprunalega kom út með Priscilla Ahn.
Það er óhætt að segja að Margrét er með gullfallega rödd og á sannarlega framtíðina fyrir sér í söngnum!
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.