Í tilefni lengri opnunartíma verslana á Hafnargötunni í Reykjanesbæ ætlar skemmtistaðurinn Center í samstarfi við tískufataverslunina Krummaskuð að halda konukvöld á Center í kvöld, fimmtudagskvöld.
Kynnir kvöldsins er ein af fáum konum sem starfa í útvarpi á Íslandi í dag en það er engin önnur en Erna Dís úr Magasín á FM957. Nóg verður um að vera á kvöldinu en tekið verður á móti öllum með veglegri gjöf frá okkur á Hún.is í samstarfi við Artdeco og A4. Þá fá allar konur glæsilegan fordrykk auk þess sem boðið verður upp á Blush-kynningu á staðnum. Síðast en ekki síst verður happdrætti á kvöldinu en allar þær sem tryggja sér miða eiga möguleika á að næla sér í eitt af þeim fjölmörgu gjafabréfum sem í boði verða frá t.d. Heilsuformi í Reykjanesbæ, Krummaskuði,Mýr Designe, Center og Nammibarnum svo eitthvað sé nefnt! Húsið opnar klukkan 21:00 með ljúfum tónum frá plötusnúði hússins en herlegheitin byrja á slaginu 22:00 – þegar verslanir við Hafnargötuna loka. |
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.