Hann Hermann Töframaður er aðeins 13 ára gamall ætlar að standa fyrir frábærri fjölskyldusýningu ásam Töfrahetjunum í Salnum, Kópavogi, föstudaginn 16. maí næstkomandi. Sýningin er liður í því að safna fjármagni til að systir hans Karen komist erlendis í aðgerð til að laga hryggskekkju. Slík aðgerð kostar 8 miljónir króna.
Hann hefur verið ötull að safna fyrir aðgerðinni með því að koma fram í afmælum og ýmiskonar uppákomum og launin sín setur hann trúfastlega inn á söfnunarreikning systur sinnar og er þegar búin að safna um 200.000 kr.
„Ég er svo snortin af hjartalagi frænda míns að ég fann mig knúna að leggja hönd á plóg og hjálpa honum við að koma þessum viðburði á framfæri,“ segir Sigga Lund um þetta fallega framtak frænda síns.
Sýning fyrir alla fjölskylduna
Töfrahetjurnar er frábær fjölskyldusýning sem inniheldur heimsfrægar sjónhverfingar og ótrúleg töfrabrögð. Áhorfendur fá að taka virkan þátt í sýningunni og fá nokkrir heppnir að aðstoða Töfrahetjurnar. Í sýningunni fá áhorfendur að sjá alvöru töfradýr og fá myndir af sér með hetjunum eftir sýninguna.
Töfrahetjurnar eru samblanda af nokkrum framúrskarandi einstaklingum sem geta gert ótrúlega hluti. Í töfrahetjunum eru meðal annars Einar Mikael töframaður og Viktoría töfrakona ásamt fleiri hetjum.
Sýningin er til styrktar Karenar systur Hermanns töframanns sem er að keppa í Íslands Got Talent. Verið er að safna fyrir aðgerð til að laga hryggskekkju sem Karen er með og vekja athygli á málstaðnum.
Töfrahetjurnar bjóða alla velkomna til að upplifa ótrúlega hluti og sjá töfrandi sýningu í Salnum.
Frjáls framlög eru einnig vel þegin
Allur ágóði af miðasölu rennur óskertur til að safna fyrir aðgerð Karenar en hérna eru upplýsingar til að leggja inná styrktarreikninginn frjáls framlög.
Reikningsnúmer: 322-13-110342 / Kt: 031296-2349
Miðasala á Töfrahetjurnar hefst miðvikudaginn 2. apríl og verða miðarnir seldir á Salurinn.is og midi.is. Miðinn kostar aðeins 2.490 kr.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.