Sundfötin koma hillurnar í búðum H&M, þann 1. maí næstkomandi. Það er engin önnur en Gisele Bundchen sem er þeirra fyrirsæta í sundfataherferðinni og er hún vel til þess fallin með þennan flott kropp.
Hin 33 ára, brasilíska fyrirsæta er ekkert smá flott á þessum myndum sem ljósmyndarinn Lachlan Bailey tók.
Gisele söng líka lag fyrir herferðina, lagið Heart of Glass með Blondie.