Ég fékk mér á dögunum alveg dásamlegan ilmolíulampa frá Zolo, en Zolo er með mikið úrval af ilmolíulömpum í öllum stærðum og gerðum og litaúrvalið er æðislegt líka. Sumir skipta litum í ljósi, aðrir ekki. Sumir bjóða upp á að slökkva á ljósinu en hafa tækið samt í gangi, það er snilld fyrir þá sem vilja nota lampana í svefnherberginu.
Allir lamparnir eru rakatæki, jónutæki og hafa hreinsandi áhrif á andrúmsloftið. Þeir eru mismunandi lengi í gangi áður en þeir slökkva á sér sjálfir þegar vatnið er búið, allt frá 2 klst til 9 klst.
Þetta eru í raun og veru 5 tæki í einu litlu:
Setjið volgt vatn í lampann upp að línunni sem þið sjáið innan í lampanum, setjið því næst uppáhalds ilminn ykkar út í og kveikið á honum. Það er mjög gott úrval af ilmolíum því Zolo er með yfir 100 ilmi í boði.
Lamparnir hreinsa andrúmsloftið, gefa góðan raka, rosa góðan ilm, framleiða neikvæðar jónir sem er svaka gott fyrir sálina og síðast en ekki síst eru þær fallegir með litlu róandi ljósi. Lampinn slekkur á sér sjálfur þegar vatnið er búið, engar áhyggjur.
Þessi sniðugu litlu tæki er tilvalið að hafa nánast hvar sem er:
- Svefnherbergjum
- Stofunni
- Forstofunni
- Baðherberginu
- Skrifstofunni
- Líkamsræktinni
- Hótelherbergjum
- Sjúkrastofum og heilsugæslu
- Spa svæðum
- Snyrtistofum
- Nuddstofunni
- Þar sem dýr eru.
Smelltu hér til að sjá fleiri lampa frá Zolo en þau eru líka á Facebook.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.