Grunnskólakennarar hafa skrifað undir nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga, svo börnin eiga að mæta í skólann á morgun.
Grunnskólakennarar höfðu boðað vinnustöðvun á morgun, 21. maí, og á þriðjudag, 27. maí, hefðu samningar ekki náðst fyrir þann tíma. Kjaraviðræðum kennara var vísað til ríkissáttasemjara í mars eftir nokkurra mánaða árangurslausar viðræður við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Upplýsingar um efni og innihald samningsins liggja ekki fyrir að svo stöddu.