Nördar, sameinist! Hvað gerist þegar Rubik´s Cube, sexhyrningur, Sudoku og slatti af koffein kemur saman?
Tölvuleikurinn Prismatica! Einfaldur, krúttlegur og hreint út sagt dáleiðandi. Stundum eru það litlu hlutirnir í lífinu sem vega þyngst. Og oft geta saklaus áhugamál snúist upp í hreina atvinnugrein – óvart jafnvel – ef úthaldið er fyrir hendi.
Höfundur kynnir Prismatica á breskri tölvuleikjahátíð í dag
Það sem hófst sem stundargaman hjá forritaranum Þórði Matthíassyni hefur nú snúist upp í fulla alvöru og tekið á sig mynd í litlum og haganlegum tölvuleik sem Þórður hannaði frá grunni og hyggst brátt kynna á tölvuleikjahátíðinni Radius Festival sem fram fer í London í dag, en Þórði til ómældrar ánægju og undrunar um leið, fékk hann boð fyrir skömmu síðan um að kynna leikinn fyrir breskum áhugamönnum.
Komst í undanúrslit A MAZE og einnig á IMGA nú í ár
Þannig hefur saklaus afþreying snúist upp í fulla alvöru á skömmum tíma og kom höfundi skemmtilega á óvart, en leikurinn nýtur mikilla vinsælda víðsvegar um heim og komst meðal annars í lokaúrtak A MAZE tölvuleikjasíðunnar sem verðlaunaleikur og var einnig tilnefndur sem besti væntanlegi tölvuleikurinn árið 2014 á IMGA verðlaunahátíðinni sem haldin var í San Fransisco fyrr á þessu ári. Það eru stórtíðindi fyrir Prismatica og Þórð því það sem byrjaði sem áhugamál gæti nú orðið að einhverju svo miklu stærra og meira.
Krúttlegur lítill leikur og flóknari en virðist við fyrstu sýn
Leikurinn sjálfur er skemmtilega einfaldur í sniðum og gengur út á að raða saman réttum litum á nokkuð flókinn hátt og minnir um margt á Rubik´s Cube. Eins og gefur að skilja lítur myndin einföld út í fyrstu en lausnin er flóknari en ætla mætti.
Snjallsímaútgáfa væntanleg í lok sumars
Tónlistina við tölvuleikinn samdi Svavar Knútur, en reikna má með snjallsímaútgáfu af leiknum gegnum iTunes og PlayStore í lok sumar og verður leikurinn fljótlega eftir snjallsímaútgáfuna aðgengilegur fyrir hefðbundnar heimilistölvur. Skemmtilegt er að segja frá að tölvuleikjasíðurnar Greelit Gaming og Indielicious hafa þegar fjallað um Prismatica, en vefsíðu hönnuðar má nálgast hér.
Viltu prófa Prismatica? Smelltu HÉR til að spila alpha-útgáfuna!
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.