Hinn 83 ára gamli ljósmyndari, Ken Heyman, birti þessar myndir fyrir um 50 árum og hét myndaserían einfaldlega „Mothers“. Myndirnar sýna, eins og nafnið gefur til kynna, myndir af mæðrum með börn sín.
Fallegar myndir sem sýna gleði og ást mæðra á börnum sínum og þessa sérstöku og skilyrðislausu tengingu milli móður og barns.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.