Söngkonan Celine Dion hefur hætt við væntanlega tónleikaferð um Asíu vegna veikinda eiginmanns hennar Rene Angelil. Celine mun leggja ferilinn á hilluna um óákveðinn tíma en tónleikar hennar í Las Vegas hafa einnig verið settir á ís. Söngkonan er með fastan samning við hótelið Caesars Palace í Las Vegas þar sem hún heldur reglulega tónleika fram til ársins 2019.
Rene þjáist af krabbameini í hálsi en reynt var að fjarlæga það í desember í fyrra og hafa veikindi hans haft mikil áhrif á sönkonuna. Celine hefur sjálf verið að glíma við bólgur í vöðvunum í hálsinum sem hefur haft þær afleiðingar að hún hefur ekki getað flutt tónleika sína Las Vegas síðan 29. júlí.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem sönkonan leggur feril sinn tímabundið á hilluna en það gerði hún líka á árunum 2000 til 2002 til að hlúa að eiginmanni sínum þegar hann greindist með krabbameinið í hálsi.
„I want to devote every ounce of my strength and energy to my husband´s healing, and to do so, it´s important for me to dedicate this time to him and to our children. I also wan to apologize to all my fans everywhere, for inconveniencing then, and I thank them so much for their love and support.“
Rene sem er 72 ára og Celine, 46 ára, eiga sama þrjá drengi. Þá René-Charles, 13 ára, og tvíburana Eddy og Nelson sem er þriggja og hálfs árs gamlir.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.