Kynþokkafullir pabbar. Í Disneylandi. Með slefandi sætar krúttsprengjur í höndum.
Þetta er nýjasta trendið sem tröllríður Instagram og ber nefnið DILFS of Disneyland, en eins og nafnið gefur til kynna er heitið DILF bein tilvísun í systurheitið MILF og útleggst á frummálinu Dad I’d Like to Fuck.
Fagrir feður sem leggja leið sína í Disneyland eiga því í fá hús að venda, því árvökul linsa ljósmyndarans er sífellt á lofti, grandskoðandi, reiðubúin að smella af …. og fanga augnablikið. Fagran föður með slefandi sæta krúttsprengju í höndum, á gangi um víðfemdar lendur Disneyland – óafvitandi um haukfrán húsmæðraaugun sem engu eira.
Dömur mínar; við kynnum „húsmæðraklám” i hæsta gæðaflokki – eða brot af þeim sýnishornum sem ber fyrir augun á Instagram reikningi DILFS of Disneyland – svakalegt, ef satt reynist?
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.