Hvítlauksristaður humar í skel
Fyrir 4
2 kg stór humar
6 stk. hvítlauksgeirar
300 gr smjör
1 dl Montalto Pinot Grigio hvítvín
2 dl rjómi
1/2 búnt steinselja
olía
salt og pipar
Aðferð
Afhýðið hvítlaukinn saxið niður smátt og saxið steinseljun líka smátt. Kljúfið síðan humarhalana í tvennt og hreinsið humarinn.
Smjörið á að vera bráðið en við stofuhita og hrærið því saman við hvítlaukinn og steinseljuna. Raðið humrinum á disk, látið mjórri endan vísa að miðju og hafið aðeins eitt lag á disknum.
Setjið olíu á vel heita pönnuna og settu allan humarinn sem er á disknum og ýtið honum á pönnuna öllum í einu svo þeir steikist jafnt. Steikist í 1-2 mínútur. Takið pönnuna af hitanum og hreyfið við humrinum. Bætið hvítvíni á pönnuna og látið krauma aðeins og bætið hvítlaukssmjörinu á pönnuna og bræðið við vægan hita. Hellið rjóma á pönnuna og kryddið með salti og pipar og hrærið öllu vel saman.
Gott er að bera brauð fram með þessum rétti, sérstaklega til að ná upp allri sósunni.
Hljómar þetta ekki vel? Við ætlum að gefa einhverjum einum heppnum humarveislu fyrir 8 manns og Montalto Pinot Grigio til að skola því niður.
Eina sem þú þarft að gera er að skrifa já takk hér fyrir neðan greinina og auðvitað vera vinur Hún.is á Facebook og þú ert komin/n í pottinn. Drögum út á fimmtudag kl 14.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.