Ellý Ármanns hefur verið sagt upp störfum hjá 365 miðlum og mun láta af störfum 1. október næstkomandi samkvæmt fréttum á Dv.is
Það er Viðskiptablaðið sem greinir frá þessu fyrst en Ellý hefur starfað hjá 365 í 9 ár.
Miklar breytingar hafa verið hjá fyrirtækinu því ekki er langt síðan að Mikael Torfasyni var sagt upp sem aðalritstjóra og Ólafur Stephensen sagði upp í kjölfarið.