Nýr íslenskur hugbúnaður tengir saman veitingastaði og stofuna heima. Matseðlar frá þrjátíu veitingahúsum.
Opnuð hefur verið veitingaþjónusta á aha.is þar sem neytendum gefst kostur á að velja af matseðlum um þrjátíu veitingastaða, sækja svo matinn eða fá sendan gegn gjaldi.
Neysla á veitingum sem keyptar eru út af veitingastöðum hefur aukist mikið síðustu ár. Ný þjónusta Aha.is auðveldar neytendum og veitingahúsum til muna þessi viðskipti með snjöllum hugbúnaði sem nær óslitið úr stofunni heima, inn í eldhús veitingastaðarins. Þegar viðskiptavinurinn hefur pantað af matseðli, á vefsíðu eða úr appi aha.is, birtist pöntunin á skjá hjá veitingahúsinu og ráðstafanir eru þegar gerðar til að útvega flutning á matnum, sé heimsendingar óskað. Greiðsla fyrir matinn fer fram í appinu eða á vefsíðunni með debit- eða kreditkorti þannig að greiðsla er frágengin við pöntun.
Hægt er að panta af matseðlum veitingastaðanna á vefsíðu aha: www.aha.is sem og í appi aha.is sem til er fyrir Android og iPhone.
Framkvæmdarstjóri Aha.is, Maron Kristófersson, segir að prófanir á kerfinu hafi staðið yfir í þrjá mánuði og hafa verið gerðar um þúsund pantanir á þeim tíma. Starfsfólk Aha.is hefur vart undan að bæta við nýjum stöðum og er búist við að fjöldi veitingastaða hafi rösklega tvöfaldast um áramót.
Sem fyrr segir hefur mjög færst í vöxt að fólk panti sér mat af veitingstöðum til neyslu heima. Ekkert nothæft íslenskt orð er til yfir það sem kallað er take away á ensku. Í tilefni af opnun veitingaþjónustunnar efnir aha.is nú til nýyrðasamkeppni um íslenskt orð í staðinn fyrir ensku slettuna take away.
Í verðlaun er úttekt að upphæð 50.000 kr. á veitingavef aha.is og iPhone 6. Nánari upplýsingar um leikinn má finna inn á heimasíðu aha.is.
Aha.is fór í loftið í apríl 2011 og hefur vaxið jafnt og þétt síðan. Í dag er síðan með 60.000 viðskiptavini og býður upp á ný tilboð daglega, fleiri þúsund vörur í netverslun sinni og nú þann möguleika að panta mat á netinu.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.