Mjúkir snúðar með glassúr
2 1/2 dl volg mjólk
2 msk þurrger
3 msk sykur
1/2 tsk salt
2 egg
75 gr. smjör eða 1/2 dl. olía
500 gr hveiti (8 dl)
Mjólk og smjör er brætt saman í potti og gerið sett saman við. Öllu er svo blandað saman.
Látið deigið hefast í 20 mín. Fletjið út deigið og smyrjið með bráðnu smjöri og stráið vel af kanilsykri, rúllið upp í snúða. Látið hefast aftur í 15 mín. Svo eru þeir bakaðir í 10-15 mín. við 200°c.
Súkkulaðiglassúr:
4 msk flórsykur,
1/2 tsk vanillusykur,
4 tsk heitt vatn,
1/2 tsk kakó
Stráið súkkulaðispæni yfir til skrauts
Uppskrift af karamelluglassúr má finna hér