Það er engum ofsögum sagt að börn ættu að leika með Lego kubba; sem eru óþrjótandi uppspretta skapandi hugmynda. Það hefur Morgan Spence, fimmtán ára gamall, gert frá unga aldri en kubbarnir leika í höndunum á drengnum.
Þannig greinir vefmiðillinn Mashable frá því hvað gerðist þegar Lego-listamaðurinn Warren Elsmore gaf Morgan það flókna verkefni að búa til kynningarmyndband sem byggði alfarið á Lego listaverkum og það á tveimur vikum. Hugmyndin var að setja saman kynningarstiklu fyrir nýútkomna listaverkabók Warren, en Morgan gerði sér lítið fyrir og snaraði saman Óskarsverðlaunahátíð þar sem nokkrar af þekktustu kvikmyndum sögunnar voru tilnefndar til verðlauna.
Í kynningarstiklunni má sjá 13 klassískar kvikmyndir; Galdrakarlinn í Oz, E.T., Breakfast at Tiffany’s, Waynes World, Dirty Dancing svo eitthvað sé nefnt. Sagði Morgan verkið hafa tekið upp allan frítíma hans, en hann vann ötult að uppsetningunni sjálfri utan skóla og oftar en ekki langt fram á kvöld.
Skemmtilegt er frá því að segja að Morgan hefur leikið sér með Lego kubba allt frá þriggja ára aldri og sagðist þannig hafa sameinað kvikmyndagerðaráhuga sinn og ástŕiðu fyrir Lego kubbum í verkefninu, sem sjá má hér að neðan.
Umfjöllunina má lesa í heild sinni á Mashable en hér fara nokkur sýnishorn af verkum Morgan og svo einnig stórbrotin kynningarstikla hans fyrir listaverkabók Warren Elsmore.
Breakfast at Tiffany’s
Ljósmynd: Morgan Spence
Titanic
Ljósmynd: Morgan Spence
Life of Pi
Ljósmynd: Morgan Spence
Sound of Music
Ljósmynd: Morgan Spence
Dancing In the Rain
Ljósmynd: Morgan Spence
Dirty Dancing
Ljósmynd: Morgan Spence
Galdrakarlinn í Oz
Ljósmynd: Morgan Spence
Drakúla
Ljósmynd: Morgan Spence
Shining
Ljósmynd: Morgan Spence
E.T.
Ljósmynd: Morgan Spence
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.