Reykjavík iðar af seiðkörlum og súrrandi sætum nornum í dag; Hrekkjavakan er í fullu fjöri og stórir sem smáir Íslendingar bregða margir hverjir á leik af því tilefni. Þó margir haldi að siðurinn sé amerískur að uppruna, er um útbreiddan misskilning að ræða eins og HÚN fór yfir með lesendum fyrr í dag.
Í dag fagna því Íslendingar komu vetrar með pompi og prakt, tilheyrandi skrautbúnaði og ógurlega útlítandi graskerjum, hlátrasköllum og gotteríisskálum. Þetta ber hæst á Instagram, þar sem fygljast má með notendum í rauntíma.
Þetta er Ísland (á Instagram) í dag!
#hrekkjavaka #hrekkjuvaka
Forsíðumyndina á notandinn @saraasgeirs á Instagram en hún keypti grasker á Akureyri og segist á samskiptamiðlinum vera fremur sátt með útkomuna: saraasgeirs Keypti mér grasker á Akureyri og skar út í dag.. nokkuð sátt með útkomuna bara 😀 #halloween #hrekkjavaka #pumpkin
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.