Tíminn svoleiðis flýgur áfram og það styttist óðum í aðventuna. Hafir þú áform um að gefa heimatilbúnar og persónulegar jólagjafir í ár þá er ekki seinna vænna en að hefjast handa.
Hér eru nokkrar hugmyndir af heimatilbúnum jólagjöfum sem gleðja
Prjónaðir vettlingar eða sokkar
Fátt gleður jafn mikið og fallegir vettlingar eða sokkar sem einhver nákominn hefur tekið sér tíma til þess að prjóna sjálfur. Uppskriftir má nálgast víða á vefnum. Ókeypis uppskrift má nálgast til dæmis hér.
.
Heimatilbúin sápa
Þetta er skemmtilegt föndur sem tekur stuttan tíma að gera. Það eina sem þarf er tilbúin sápublanda sem fæst í næstu föndurbúð og að velja ilmefnin eða kryddin sjálf. Hér má sjá hugmynd að sápu með kanel og kaffi lykt.
Heimatilbúin chutney
Sultur njóta sín vel í fallegum krukkum sem búið er að stjana aðeins við. Setja fallegan borða eða klút yfir lokið og merkja með fallegum miða. Hér má nálgast uppskrift af ljúffengu Mango Chutney.
Nuddolía með ilm að eigin vali
Nuddolíur eru ekki bara góðar fyrir nuddið heldur geta þær veitt þurri vetrarhúð góðan raka. Einnig má nota ilmolíur í stað ilmvatna. Það sem ræður útkomunni er hvaða tegund af ilmkjarnaolíu þú setur út í grunnolíuna. Uppskrift af ungbarnaolíu má nálgast hér.
Málverk sem þú málar sjálf
Abstrakt listaverk eru alltaf sígild. Með þessari einföldu tækni geturðu skapað heilu meistarastykkin. Veldu nokkra liti. Kreistu litlar slettur yfir allan strigann og byrjaðu svo að tengja litina saman. Fleiri hugmyndir má sjá hér.