Leikkonan Tara Reid birti á fimmtudaginn myndir af sér í tilefni Þakkargjörðarhátíðarinnar en hún fagnaði hátíðinni á heimili foreldra sinna í Palm Springs. Tara skrifaði undir myndina að hún væri „before turkey“ en þeir sem elta hana á Instagram var alveg sama og deildu áhyggjum sínum yfir heilsu hennar í kommentakerfinu.
Eins og Hún.is greindi frá fyrr í mánuðinum þá birti Tara mynd af fótleggjunum sínum á Instagram. Myndin fékk mikla gagnrýni þar sem fótleggir hennar voru óhugnalega grannir og endaði hún með að fjarlægja myndina.
Hin 39 ára Tara deildi því á Twitter á föstudaginn að hún hafi borðað svo mikið að hún hafi sofnað klukkan níu um kvöldið og ekki vaknað fyrr en átta daginn eftir.
Wow guys I ate so much from thanksgiving dinner I fell asleep at 9 pm and was supposed to meet up with some friends and just woke up now.
Tengdar greinar:
Tara Reid ekki í góðum málum – datt fyrir framan skemmtistað
10 frægar konur án „photoshop“ – Myndir
Alltof grönn Denise Richards? – Myndir
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.