Ekki ber öllum saman um hvort ráðlegt er að líma krossa á rúður í óveðri. Á fréttavef mbl.is kemur þannig fram að tilkynning sem aðgerðastjórn björgunarsveita á Suðurnesjum beindi til fólks að líma yrði rúður að innan vegna hættu á að þær brotni í óveðri, séu úr sér gengnar og að varúðar skuli gætt við framkvæmd slíkra gjörninga.
Vitnar Morgunblaðið þar í bandaríska fjölmiðla sem segja tilmælin orka tvímælis en nokkur umræða mun hafa myndast um límkrossa í rúðum vestanhafs árið 2012 eftir að Fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna varaði íbúa á hættusvæði við að líma límband innan á rúður í heimahúsum.
Þá sagði talsmaður Fellibyljamiðstöðvarinnar í viðtali við fréttastofuna CBS að límbandaþjóðsagan væri lífseig en að með því að líma límband innan á rúðurnar jykust líkurnar á stærri glerbrotum að sama skapi, brotnaði rúðan á annað borð. Með stærri glerbrotum væri því verið að auka á slysahættu, yrði einhver heimilismaður fyrir brotunum þegar þeim ringdi yfir heimilið.
Mælt var með því á áttunda áratugnum að líma krossa í rúður en vestanhafs var fallið frá þeirri hugmynd um áratug síðar og hefur verið mælt mót því að líma krossa í innanverðar rúður víða um heim allar götur frá upphafi níunda áratugarins.
Á vef mbl.is segir jafnframt:
Á vefsvæðinu Gismodo má sjá lista yfir fimm þjóðsögur sem tengjast fellibyljum. Þar segir um teipun rúða: „Þegar eitthvað fýkur í rúðu sem er án límbanda eru meiri líkur en minni á því að hún splundrist í þúsund mola. Það kann að hljóma illa en er mun skárra en að fá stærri og hættulegri glerbrot yfir sig.“
Til að lesa alla umfjöllun mbl.is þar sem farið er nánar yfir málið, smellið hér
Skólinn lokaður vegna veðurs, best að tilkynna það með söng – myndband
Áhrif veðurfarsbreytinga á húðina.
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.