Femíniskur róttæklingur sem tilheyrir baráttuhópnum Femen tók ofsafengið tilhlaup og hrifsaði Jesúbarnið úr jötu sinni innan veggja Vatíkansins á sjálfan jóladag. Konan, sem heitir Iana Aleksandrovna Azhadonova er ættuð frá Úkraníu og óð öskrandi upp á svið – en hún var kviknakin ofan mittis og hafði áletrað orðin GUÐ ER KONA á bringuna á sér.
Hrifsaði Jésúbarnið úr jötunni og hljóp berbrjósta yfir sviðið
Því næst hrifsaði Iana sjálft Jésúbarnið úr jötu sinni, öskraði orðin sem hún hafði áletrað á bringuna í gríð og erg og gerði ofsafengna tilraun til að hverfa út í náttúruna með Jésúbarnið í fanginu. Henni varð þó ekki úr þeirri fyrirætlan sinni þar sem öryggisverðir brugðust samstundis við, gripu berbrjósta róttæklinginn föstum tökum og hnepptu samstundis í varðhald. Þúsundir pílagríma sem komið höfðu til Vatíkansins í þeim tilgangi að votta Jesú og páfa virðingu sína á jóladag urðu vitni að hörmulegu atvikinu.
Eyddi jólum í varðhaldi innan veggja Vatíkansins
Iönu hefur verið sleppt úr varðhaldi en sætir engu að síður ákæru fyrir að trufla friðinn, óspektir á almannafæri og þjófnað. Talsmaður Vatíkansins sagði í viðtali við breska miðilinn Guardian að æðstu menn Vatíkansins sætu nú á rökstólum og verið væri að íhuga hvort Iana yrði ákærð fyrir helgispjöll á jólum, þar sem um alvarlega atvikaröð væri að ræða sem misboðið hefði trúarvitund ófárra.
Hér má sjá ótrúlegt atvikið sem náðist á filmu:
Tengdar fréttir:
Þunguð kona hraunar yfir mótmælendur fóstureyðinga
Myndir frá Rússlandi sem allir ættu að sjá – Myndir
Skets frá Daily Snow: „Viðbrögð Jesú við mosku í Reykjavík“
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.