Leikkonan Angelina Jolie hefur mikið breyst í gegnum tíðina en hún átti það til að mæta með ögrandi framkomu á opinbera viðburði en er í dag talin vera afar fáguð í framkomu og klæðaburði.
Til dæmis má nefna þegar að hún mætti á rauða dregilinn fyrir Óskarsverðalaunin árið 2000 ásamt bróður sínum og deildi með honum afar innilegum kossi fyrir framan viðstadda. Kossinn vakti mikil viðbrögð og þótti mörgum þetta vera sifjaspell.
Sú kona sem Angelina er í dag þykir því afar ólík þeirri sem steig fyrst upp á stjörnuhimininn.
Myndir af leikkonunni sem voru teknar árið 1995 voru nýverið birtar á netinu en þá var Angelina 19 ára og í þann mund að fara að leika í kvikmynd sem kom henni á kortið.
Tengdar greinar:
Angelina Jolie er föst heima með hlaupabólu
Angelina Jolie bjargar aðdáanda frá því að troðast undir
Brad Pitt og Angelina Jolie gengin í hjónaband
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.