Sin City 2: A Dame To Kill For trailerinn er kominn út og eins og reikna má með inniheldur klippan sjóðheit og seiðandi tálkvendi; stíliseraðar ofbeldissenur og þokkafullir dauðdagar í teiknimyndabókastíl sem er einmitt aðalsmerki Sin City seríunnar.
En að þessu sinni ráða morðkvendin algerlega ferðinni ef marka má klippuna sem sjá má hér að neðan en í þriggja mínútna trailernum sem er eins og þrívíð klippa úr teiknimyndasögu má sjá þær Jessicu Alba, Eva Green, Rosario Dawson og Jamie Chung sýna sínar svaðalegustu tálkvendahliðar á undirfötunum einum.
Sin City 2: A Dame To Kill For – sjúklega seiðandi trailer:
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.