Þessi uppskrift er fengin af blogginu hennar Tinnu Bjargar og er að mínu mati alveg ekta sunnudags. Hvað er betra en að baka á sunnudögum? Sofa, já ókei. Bakstur er þá í öðru sæti.
Sjá einnig: Hættulega góð bananaostakaka
Æðisleg mangóostakaka
Kexbotn
1 1/2 kassi Tom & Jerry kex
100 g brætt smjör
- Malið Tom & Jerry kex í matvinnsluvél eða blandara. Hellið bræddu smjöri yfir kexið og blandið saman þar til smjörið hefur vætt upp í öllu kexinu.
- Klæðið botninn á smelluformi með plastfilmu og þrýstið kexblöndunni jafnt og þétt ofan í botninn. Frystið kexbotninn á meðan ostafyllingin er gerð.
Ostafylling
400 g rjómaostur
3 1/2 dl flórsykur
350 ml þeyttur rjómi
6 matarlímsblöð
30 ml rjómi
2 pokar Cadbury súkkulaðiegg
- Þeytið rjómaost og flórsykur saman. Blandið þeyttum rjóma varlega saman við rjómaostinn með sleikju.
- Leggið matarlímsblöð í vatnsbleyti þar til þau verða mjúk. Kreistið vatnið af matarlímsblöðunum og bræðið þau saman við 30 ml af rjóma sem hitaður hefur verið að suðu. Kælið matarlímið þar til það verður volgt. Hellið því svo í mjórri bunu út í ostafyllinguna.
- Mikilvægt er að hræra stanslaust í ostablöndunni á meðan með pískara til að koma í veg fyrir límkekki.
- Brjótið Cadbury egg með buffhamri eða myljið þau gróft í matvinnsluvél og blandið þeim saman við ostafyllinguna.
- Smyrjið ostafyllingunni jafnt yfir kexbotninn í smelluforminu og setjið í kæli á meðan mangóhlaupið er útbúið.
Mangóhlaup
1 mangó
safi úr 1/2 sítrónu
2 msk sykur
1/2 dl vatn
3 matarlímsblöð
- Afhýðið mangó, maukið það í blandara og setjið í pott ásamt sítrónusafa, sykri og vatni. Hitið að suðu og látið krauma í um tvær mínútur eða þar til sykurinn hefur bráðnað.
- Leggið matarlímsblöð í vatnsbleyti þar til þau verða mjúk og bræðið þau saman við mangósósuna.
- Kælið mangóhlaupið niður að stofuhita og smyrjið því yfir ostakökuna. Kælið kökuna aftur í 2-3 klst eða þar til hún hefur stífnað. Skerið hliðar ostakökunnar lausar frá springforminu og leysið formið. Fjarlægið plastfilmuna undan kökunni og færið hana varlega á kökudisk.
- Þegar ég geri ostaköku nota ég alltaf rjómaostinn frá Ostahúsinu því áferðin á honum er svo slétt og falleg.
- Mér finnst mangóostakakan best þegar hún hefur fengið að standa í kæli yfir nótt. Þá geri ég kökubotninn og fyllinguna daginn áður og útbý svo hlaupið þegar ég ber kökuna fram.
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.