Æðislega lífleg og skemmtileg leiksýning Borgarbarna

Jólasýningin hjá Borgarbörnum þetta árið heitir „Jólanótt Viktoríu” og var frumsýnt 29. nóv en þetta er áttunda árið í röð sem Borgarbörn setja upp jólasýningu. Leikstjóri og höfundur handrits er Erla Ruth Harðardóttir, söngstjóri er Rebekka Sif Stefánsdóttir og danshöfundur er Auður Finnbogadóttir.

Leikararnir í leikritinu eru átján talsins, allt krakkar á aldrinum 11-15 ára en til gamans má geta að síðustu þrjú árin hafa jólasöngleikir Borgarbarna vermt efstu sætin yfir mest sóttu sýningar áhugaleikfélaga.

Sýningin fjallar um óstýriláta, heimtufreka stúlku, Viktoríu að nafni, sem búin er að tapa sér í græðgi í veraldlega hluti. Viktoríu er lítið sinnt af föðurnum Merði sem telur mikilvægara að græða peninga en að sinna dóttur sinni. Fóstran Fjóla sér svo til alfarið um stúlkuna og reynir að innræta henni hin góðu gildi. Fjólu berst liðsauki þegar sönghópur frá Hjálpræðishernum mætir á staðinn en þó skiptir sköpum á sjálfa jólanótt þegar sjálf Viskan, ásamt fylgiverum birtast Viktoríu.  Þessi skemmtilegi jólasöngleikur inniheldur fjölmörg vinsæl erlend lög í íslenskum búningi, óvæntar uppákomur og skemmtilega dansa. Jólaálfar birtast, Camilla frænka kemur í heimsókn og að sjálfsögðu birtist jólasveinn, en þó alfarið í nýjum búningi.

Tíu vinsæl, erlend lög, nú með íslenskum texta, eins og áður er getið, eru sungin í sýningunni þ.a.m. eitt af lögum hinnar vinsælu hljómsveitar Of Monsters and Men, „Little Talks“.

Sýningartími er rétt undir klukkustund en sýningatímar eru virka morgna kl. 9:30 og/eða 11:00, virka eftirmiðdaga kl. 17:00 og um helgar kl. 14:00 og/eða 16:00 og verður  sýnt fram að jólum í Iðnó við Reykjavíkurtjörn.

Jólagjafasöfnun fyrir Mæðrastyrksnefnd er árleg hefð. Áhorfendur geta komið með pakka á sýningar, merktan aldri og kyni og Borgarbörn koma til skila til Mæðrastyrksnefndar fyrir jól.

Ofboðslega skemmtilegt leikrit og greinilegt að leikarar verksins hafa ótrúlega gaman að því að leika og eru virkilega hæfileikaríkir. Lögin voru mjög skemmtileg og það verður engin svikinn af því að fara á þessa sýningu.

SHARE