Þessar brúðarmyndir eru stórkostlegar og ævintýralegar að öllu leiti. Þær eru af brúðhjónunum fyrir neðan yfirborðið á vatni, en þrátt fyrir að þær taki töluverða fyrirhöfn, til dæmis að halda niðri í sér andanum í langan tíma í senn, koma þær stórkostlega út.
Það er ekki auðvelt að vera í brúðarkjól á bólakafi í vatni eða sjó en það kemur dásamlega fallega út, þá sérstaklega ef það er mikil blúnda í kjólnum.
Skemmtileg hugmynd fyrir þau sem langar til að gera myndirnar sínar frábrugðnar þeim flestum.
Sjá einnig: Skemmtilega skelfilegir brúðarkjólar
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.