Þessar ægilega fínu bollakökur koma af blogginu hennar Tinnu Bjargar. Þetta eru kökur sem lífga upp á öll veisluboð og eru einstaklega bragðgóðar. Það má nú alveg skella í eina svona uppskrift um helgina. Það held ég nú!
Sjá einnig: Fljótlegu bollakökurnar með súkkulaðikremi
Bollakökur
270 gr sykur
115 gr mjúkt smjör
2 stór egg
1 og 1/2 tsk vanilludropar
280 gr hveiti
2 og 1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
245 ml mjólk
- Þeytið sykur og smjör sama þar til blandan verður ljós og létt. Bætið við einu eggi í einu ásamt vanilludropum.
- Blandið saman í aðra skál hveiti, lyftidufti og salti. Hrærið helmingi þurrefnablöndunnar saman við smjörblönduna, síðan mjólkinni og loks afgangi af þurrefnablöndunni.
- Hrærið deigið þar til allt hefur blandast vel saman. Fyllið muffinsform af deigi til hálfs með matskeið eða teskeið.
- Bakið bollakökurnar við 170° í 20-25 mínútur og kælið áður en smjörkremi er sprautað á þær.
Sjá einnig: Syndsamlegar súkkulaðibita-bollakökur
Smjörkrem
450 gr mjúkt smjör
500-600 gr flórsykur
2 og 1/2 tsk vanilludropar
matarlitur eftir smekk
- Þeytið smjör til að mýkja það og bætið við flórsykri smátt og smátt. Hrærið því næst vanilludropum og matarlit saman við kremið.
- Setjið kremið í sprautupoka með sprautustút 1M eða 2D frá Wilton. Sprautið kreminu á bollakökurnar og myndið fallegar rósir.
- Byrjið á að sprauta sma kremi í miðju hverrar köku og sprautið áfram í hringi þar til bollakakan er öll þakin kremi.
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.