Kim Kardashian veldur múgæsing hvar sem hún kemur, það er á hreinu. Í gær steig raunveruleikastjarnan út úr íbúð sinni í New York borg og það var eins og við manninn mælt – það varð allt vitlaust. Aðdáendur hópuðust að Kim, heimtuðu myndir, faðmlög, selfies og hvað eina. Áttu lífverðir Kardashian í fullu fangi með að halda fólki í hæfilegri fjarlægð. Ekki var það einungis almenningur sem stóð trítilóður á gangstéttinni, heldur voru fjölmiðlar engu skárri. Á myndunum má sjá að æsingurinn í fólki var mikill – fólk varð jafnvel undir og endaði kylliflatt á stéttinni.
Já, allir vildu sína sneið af drottningunni.
Sjá einnig: Reyndi að stela athyglinni frá Kim Kardashian og Kanye West
Myndbandið segir líka allt sem segja þarf:
https://youtu.be/FO4E7T2tSRE
Sjá einnig: Beið í þrjá daga fyrir utan hótelið hjá Kim Kardashian