Rannsóknir hafa leitt það í ljós að bjórdrykkja kvenna minna líkur á hjartaáföllum töluvert. Einn til tveir bjórar á viku eru því hollir fyrir allar konur og minnka áhættu hjartaáfalls um 30%.
Sjá einnig: 6 einkenni hjartaáfalls hjá konum
Hins vegar getur bæði of mikil drykkja og of lítil drykkja aukið hættuna á líkamlegum veikindum, þar á meðal hjarta og æðasjúkdómum, samkvæmt rannsókn þessari. Hjá þeim konum sem tóku þátt í rannsókninni, sem stóð yfir frá árinu 1989 til 2000, voru mun færri tilvik hjartasjúkdóma hjá þeim sem drukku 1 til 2 bjóra á viku, heldur en hjá þeim sem drukku bæði oftar í viku og þeirra sem drukku alls ekkert áfengi.
Sjá einnig: Bjórauglýsing sem mun bræða í þér hjartað
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.